Sveitasetrið við Laxá í Kjós
Sveitasetrið við Laxá í Kjós er örstutt frá Reykjavík og hentar við öll tækifæri. Húsið er nýtt og er glæsilegt í alla staði með stórglæsilegu útsýni. Þar er stór og vandaður veislusalur sem tekur allt að 100 manns í sæti og býður gistingu fyrir allt að 40 manns. (smelltu hér til að sjá staðsetningu hússins á korti!)
Nánari upplýsingar veitir Júlíus í síma 892 9263 eða email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Björn í síma 868 6008 eða email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Sveitasetrið við Laxá í Kjós
Setustofan er með glæsilegan arin sem gott er að slappa af við eftir erfiðan dag

Veislusalurinn er með stórkostlegt útsýni yfir ánna og útí Hvalfjörð
Kokkarnir á sveitasetrinu við Laxá í Kjós eru sannkallaðir töframenn!

Öll herbergi eru uppábúin með sér baði
Fleiri myndir frá sveitasetrinu við Laxá í Kjós
Hvalfjörður - Afþreying
Hvalfjörður er með fallegri fjörðum landsins en hefur svoldið fallið í gleymsku síðan göngin voru tekin í gagnið. Allir vita að örstutt er uppí Hvalfjörð og er margt skemmtilegt að sjá og gera í Hvalfirði. T.d. eru fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir s.s. fossinn Glymur í Botnsdal (hæðsti foss á Íslandi), Þyrill, Þyrilsnes, Hvalvatn, Hvalfell og Leggjabrjótur (sjá nánar www.kjos.is).
Samansafnið á Kiðafelli (fjölbreytt safn gamalla muna í viðeigandi umhverfi), Kaffi í Kjós þjónustumiðstöð, Neðri Háls lífræn framleiðsla og sala ,beint frá býli, kræklingafjörurnar í Hvalfirði og skórækt og gönguleiðir við Fossá.
Ólafur Oddsson á Stekkjarflöt býður uppá, Lesið í skóginn, Tálgað í tré eða annarskonar upplyftingar og skemmtiverkefni. Bendum við á að hafa samband við Óla í síma 566-6296, eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. en þetta er einungis nokkra mínútna göngutúr frá sveitasetrinu.
Á slóðum Írafellsmóra. Saga, menning og mannlíf í Kjós. Hernámsárin í Hvalfirði, Maríuhöfn, Staupasteinn, Laxá í Kjós, Írafellsmóri, sögur úr sveitinni, náttúruperlur og margt fleira. Leiðsögn: Vigdís Ólafsdóttir, B.Sc. í ferðamálafræði og leiðsögumaður. Fædd og uppalin í Kjós. S: 6963035 - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Gallerý Álfhóll, Bjarteyjarsandi s. 862-1751. Sundlaugin Hlöðum s. 433 8877. Hestaleigan Þúfa í Kjós s. 897-7660.

Botnssúlur Botnsdal, Hvalfirði
Hvalfjörður

















