Sveitasetrið við Grímsá
Í sveitasetrinu við Grímsá er glæsilegur salur sem tekur allt að 70 manns í sæti og gisting fyrir allt að 36 manns. Í húsinu er gufubað og heitur pottur svo hægt er að slaka vel á eftir góðan dag. Veiðihúsið við Grímsá er 16 km frá þjóðvegi eitt. Beygt er af þjóðveginum rétt fyrir sunnan Borgarfjarðarbrú. (smelltu hér til að sjá staðsetningu hússins á korti!)
Nánari upplýsingar veitir Júlíus í síma 892 9263 eða email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og Björn í síma 868 6008 eða email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Bygging "hallarinnar" sem í daglegu tali er nefnt sveitasetrið við Grímsá hófst sumarið 1972 og var hún tekin í notkun vorið 1973 innan við ári eftir að framkvæmdir hófust.
Húsið á sér enga hliðstæðu á Íslandi og þó víðar væri leitað og hefur alla tíð vakið mikla athygli þeirra sem þangað hafa komið eða framhjá farið. Nánasta umhverfi hússins er ekki síðra listaverk en húsið sjálft og er það hverjum manni ljóst sem hingað kemur að höfundar hússins og náttúrunnar í kring hafa í sameiningu unnið stórkostlegt starf.
Arkitektinn sem teiknaði sveitasetrið við Grímsá var veiðimaðurinn Ernest Schwiebert sem veiddi í Grímsá í mörg sumur. Ernest skrifaði mikinn fjölda bóka sem tengjast stangveiði auk þess að vera hæfileikaríkur fluguhnýtari.

Veislusalurinn í "höllinni"

Kokkarnir á sveitasetrinu við Grímsá eru sannkallaðir töframenn!
Fleiri myndir frá sveitasetrinu við Grímsá
Borgarfjörðurinn er eitt fegursta hérað landsins. Kjarrivaxnir ásar, fallegar veiðiár og grösugar eyrar. Í bakgrunni rísa fjöll mikilla töfra: Baula, Eiríksjökull, Strútur, Hafnarfjall og Skarðsheiði. Borgarfjörður hefur upphafi Íslandsbyggðar verið eitt af höfuðvígjum íslenskrar menningar og nægir þar að nefna Snorra skáld í Reykholti. Guðmundur Böðvarsson, Stefán Jónsson, Jón Helgason, Þorsteinn frá Hamri eru á meðal íslenskra höfuðskálda seinni tíma. Og að sjálfsögðu átti Halldór Laxness ættir að rekja til Borgarfjarðar.

Barnafossar í Hallmundarhrauni í Hvítá

















