Svalbarðsá

Almennar Upplýsingar
Staðsetning: 170km frá Akureyri
Veiðitímabil: 1. júlí - 14. september
Besti tími: Miður Júlí - seint í Ágúst
Lengd: 17km.
Meðalveiði seinustu 9ár: 310 laxar
Stangir: 2-3
Veiðileiðsögumenn: Ef óskað er eftir
Veiðihús: Án þjónustu
Ath: Öllum Laxi er sleppt, og skal særður lax njóta vafans og sleppt.
Veiðikort (PDF)
Staðsetning (Google)

Lýsing
Svalbarðsá er dragá sem á upptök í Djúpárbotnum á Öxfirðingaafrétti. Hún er 37 km. löng og fellur í Þistilfjörð. Vatnasvið hennar er 350 ferkm. Meðalveiði áranna 1974 til 2008 er 187 laxar, minnst árið 1984, 29 laxar, mest 384 árið 1993. Leyfð er veiði á tvær til þrjár stangir. Nýtt og glæsilegt veiðihús er við ána með sér baði í hverju herbergi. Hægt er að keyra að flestum hyljum á neðstu tveimur svæðunum en ganga verður uppá svæði 3.
Veiðitölur
Veiðitölur seinustu 10 ár.

Kort af Svalbarðsá
(smeltu á mynd til að sjá fulla stærð)



