Laxá í Kjós


Almennar Upplýsingar

Staðsetning: 30km frá Reykjavík.
Veiðitímabil:20.júní - 25. september
Lengd: 25km, 100 hyljir
Meðalveiði síðustu 10 ár: 1341 lax
Stangir: 8-10
Veiðileiðsögumenn: Ef óskað er eftir
Veiðihús: Full þjónusta
Ath: Öllum laxi yfir 69cm skal sleppt
Veiðikort (PDF)
Staðsetning (Google)

Lýsing

Laxá í Kjós og Bugða hafa um langt árabil verið með bestu laxveiðiám landsins. Náttúrufegurð er mikil í Kjósinni og fjöldi fallegra veiðistaða. Veiðisvæðið er um 25 km langt með yfir 100 merkta veiðistaði. Aðgengið að ánni er þægilegt og nægir 4 x 4 fólksbíll fyllilega til að athafna sig á bökkum Laxár í Kjós.

Í Laxá í Kjós og Bugðu veiddust 1.404 laxar sumarið 2009 og var síðsumarsveiðin í ánni mjög góð eins og mörg undanfarin ár en hafa ber í huga að maðkur er ekki leyfður að hausti til. Kjósin er skemmtileg fluguveiðiá og flesta veiðistaði má veiða með einhendu.

Veiðimenn gista í nýju og glæsilegu veiðihúsi. Veiðitími hefur verið færður aftur svo um munar því nú opnar Kjósin ekki fyrr en 20. júní. Hausttíminn í Laxá og Bugðu er nú orðinn ákaflega álitlegur, en breytt veiðitilhögun eykur nú veiðina síðsumars. Athugið að í Bugðu skal öllum laxi sleppt.

Veiðitölur

Árin 2000 - 2010


Kort af Laxá í Kjós

(smeltu á mynd til að sjá fulla stærð)


Ljósmyndir frá Laxá í Kjós

{gallery}promo_laxainkjos{/gallery}