Gljúfurá

Almennar upplýsingar
Staðsetning: Blönduós, 240km frá Reykjavík
Veiðitímabil: 1 júlí - 20 september
Lengd: 17km, 26 hyljir
Meðalveiði: 110 Laxar, 40 Bleikjur
Stangarfjöldi: 2
Veiðileiðsögumenn: Ef óskað er eftir
Veiðihús: Án þjónustu
Ath: Fluga eingöngu árið 2011. Kvóti er einn fiskur á dag.pr stöng.
Veiðikort (PDF)
Staðsetning (Google)
Lýsing
Gljúfurá er lítil og nett á sem hentar vel þeim sem vilja hafa heila á útaf fyrir sig. Áin hefur staðið í skugganum af nærliggjandi perlum en einnig hefur hún farið hljóðlega vegna þess að þeir sem hafa veitt í henni hafa ekki viljað beina of mikilli athygli að henni vegna þess að í henni er mikil stórlaxavon.
Meirhluti árinnar fellur um gil og aðgengi er töluvert upp og niður brattar hlíðar. Hyljirnir er frekar stuttir og oft er erfitt að sjá lax í ánni þar sem hann liggur í skjóli undir hvítfrissinu.
Tveir laxastigar eru í ánni og eru báðir nálægt þjóðveginum. Oft má sjá mikla laxatorfur neðan við stigana en gott útsýni er ofan í hylin af klöppunum fyrir ofan.
Ágætis sjóbleikjuveiði er neðarlega í ánni rétt fyrir ofan Hópið.
Gott Veiðihús er við ánna. Tvö tveggja manna herbergi og eitt herbergi með kojum.
Kort af Gljúfurá
(smeltu á mynd til að sjá fulla stærð)
Ljósmyndir frá Gljúfurá
{gallery}promo_gljufura{/gallery}



