Um félagið

Veiðifélagið Hreggnasi var stofnað árið 2000 af Jón Þór Júlíussyni og Júlíusi Jónssyni. Félagið byrjaði með eitt veiðisvæði en í dag bjóðum við viðskiptavinum okkar uppá fjölbreitt veiðisvæði víðsvegar um landið.

Eitt af markmiðum félagsins er að trygga verndun laxastofna og höfum við því lokað einstökum svæðum í ánum til að tryggja afkomu stofnsins, einnig  sleppum við öllum laxi yfir 69cm. Þetta framtak er farið að skila sér í miklu mæli á veiðisvæðum okkar.