Nýtt útlit fyrir nýtt tímabil

Nýtt útlit vefsíðunar okkar lítur dagsins ljós þegar styttist í opnun fyrstu laxveiðiánna. við biðjum viðskiptavini okkar velvirðingar á þeim truflunum sem orðið hafa seinustu daga vegna uppsetningar.

Þá er komið að því, á því herrans ári 2012 en silungsveiðin hefst þann 1. apríl eins og áður og verður spennandi að fylgjast með gangi mála. Minnum veiðimenn að fara sér varlega og gæta að sér þar sem slóðar geta verið blautir og ennþá er allra veðra von. Hreggnasi óskar veiðimönnum öllum, gleðistunda við árbakkann.

Veiðifélagið Hreggnasi framlengdi á dögunum samning sinn um leigu á Grímsá og Tunguá í Borgarfirði til næstu 3. ára. Vomumst við til að geta boðið áfram, sem og hingað til veiðileyfi á samgjörnu verði. Við sem stöndum að félaginu viljum þakka það traust sem okkur er sýnt, af hálfu Veiðifélags Grímsár og Tunguár og tökumst jafnframt spenntir á við verkefni komandi ára, við þessa Drottningu Borgarfjarðar.